Bogga bras.....

Allt og Ekkert

18.01.2008 16:18:13 / jóli

Hætt

Já Elskurnar mínar.. ég er hætt ad blogga... í bili allaveganna. Their sem vilja fá fréttir af mér eru vinsamlegast bednir um ad hringja eda senda mér tölvupóst.

Hafid thad gott

 

out....


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 12:28:38 / jóli

Gleðilega hátíð

Sælt veri fólkið.

Jæja, ég er stödd á klakanum og verð hér fram til 8 jan. Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér síðan ég kom og ég sé ekki að það fari eitthvað að minnka á næstunni. Það eru þó ennþá lausir tímar;)

 

Jólin búin að vera þokkaleg. Búin að borða yfir mig eins og líklegast flestir íslendingar, opna pakka og fara í jólaboð. Eini gallinn er þetta veður. Hvað er málið með kuldann. skrapp aðeins út áðan og 11 stiga frost. Þetta er ekki normal;)

 

Mig langar svo að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakka fyrir það liðna. ÞEtta er mitt jólakort. Sorry þið, sendi engin jólakort, ekki einu sinni til ömmu og afa.

 

jæja er að spá í að skella mér á skauta...

 

out......


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 09:48:23 / jóli

hvað er að gerast??

Já mín ákvað að blogga.

Ég er komin í "jólafrí". Skiluðum verkefninu í dag.. loksins. Eftir alla vinnuna og stressið getur maður loksins slappað af.

 

Ég he nú ekki mikið að segja.. langaði bar að láta vita að ég væri á lífi...  en þið.. við sjáumst svo vonandi á klakanum fljótlega.. muna að panta tíma;)

 

out...


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 10:38:57 / jóli

Nenni ekki neinu

allt of mikið að gera og of fáir tímar í sólahringnum... argg.. er að verða geðveik... þetta er þó brátt búið.. 2 vikur eftir og svo komin í smá jólafrí:D:D

 

out....


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 10:38:25 / jóli

Heimsókn:)

Vala frænka, Axel og dóttir hans Axels komu hingað í heimsókn til mín í gær.

Leið okkar lá í dýragarðinn. Það voru alls ekki margir í dýragarðinum þótt veður væri ágætt. Dýrin voru alveg í essinu sínu og fengum við að kynnast því.

eitt tígrisdýrið var frekar ágengt og þegar ég og Vala stöndum fyrir utan búrið hjá því að skoða myndir þá stekkur það á glerið. Ég hélt ég fengi hjartaáfall. Svo hlógum við ansi mikið af þessu eftirá.

Þessi ferð var hin fínasta skemmtun og var ekkert smá gaman að sjá Völu:) Takk fyrir daginn.

 

Annars þá gengur lifið sinn vanagang hérna og það styttist í skil á verkefninu. Næstu tvær vikur eiga eftir að vera stífar og kemst maður svo í smá langþrátt frí þann 19. Frí.. get ekki alveg sagt það því ég þarf að skila smá skýrslu 4 janúar þannig að eitthvað verður tíminn fram að því nýttur í skrif, þ.e. eftir að ég skila verkefninu.

 

Langar svo að þakka ykkur öllum fyrir commentin og stuðninginn:)

knús

 

out....


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 17:08:12 / jóli

TILKYNNING TIL SÖRU

SARA: ég kem til íslands 22 desember og verð þar til 8. janúar... skrifaðu þetta nú niður.. veit ekki hversu oft ég er búin að segja þér þetta;)

 

annars þá langar mig líka til að þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar:)

Hef því miður ekki tíma til að blogga núna.. er með smá fyrirlestur á morgun... (workshop sem ég er í) og þarf að klára að undurbúa það og æfa mig. síðan er verkefnið líka alveg á milljón núna....

 

 

out...


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 08:47:49 / jóli

Ónefnd færsla

Nú er allt að fara að gerast í verkefninu og eftir 2 óvenjulegar vikur er lífið að komast í skorður aftur....

 

Mamma og óli voru hérna hjá mér í viku og var æðislegt að hafa þau hjá mér:) takk fyrir mig.. Það var stjanað við mig í bak og fyrir enda ekki mikið sem ég gat gert... algjör lúxus í heila viku.

Náði mér samt líka í einhverja pest ofan í þetta allt saman og missti röddina um helgina. Röddin er þó að koma tilbaka hægt og rólega.

 

Svo styttist í að ég komi heim um jólin og er ég farin að hlakka ansi mikið til, hitta familíuna og vinina og allann pakkann:) borða góðann mat og svona:)

 

sorry elskurnar en ég verð víst að hætta þessu... þarf að fara að byrja á verkefninu.

 

 

out...


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 19:29:58 / jóli

Aðgerðin

Já nú er aðgerðinni á hnénu á mér loksins lokið. Sinar og liðbönd stytt í hnénu á mér til að stabílisera hnéskelina. Svo er bara tékk eftir tvær vikur.

Aðgerðin gekk víst fínt en ekki sama að segja mér eftir hana. Varð drulluveik af svæfingunni og verkjalyfjunum og er búin að vera að ælandi eins og múkki í dag. Ennþá með svima og óglatt og er að reyna mitt besta að halda niðri kvöldmatnum sem hún móðir mín eldaði áðan. Vona að ég verði betri á morgun. Fékk reyndar morfín töflur og fleira til þess að geta sofið almennilega í nótt og vonandi tekst það.

 Ætla að reyna að koma mér á ról á morgun eða hinn... nenni ekki að hanga svona inni og gera ekkert nema að kvarta og sofa...

 

Kom nottla frá Búdapest á föstudaginn og þvílíka vesen sem ég og jacob lendum í. Fluginu okkar með STerling frá Búdapest seinkað um 4 tíma sem veldur því að þegar við komum að tékka inn í flugið til álaborg (ásamt 3 öðrum) þá voru 2 tékkaðir inn en ég og jacob og önnur stelpa fengum ekki að fara í flug og við nottla ekki sátt. Til þess að komast til álaborgar neyddumst við að punga út öðrum 1900 dkk ofan í það sem við vorum búin að borga. Við ætlum að senda inn kvörtun því við mætum of seint í sterling flugið til álaborg því að sterling var of seint í búdapest... auðvitað keyptum við ekki tryggingu því þegar maður er að tala um 4-5 tíma á milli fluga þá er maður ekki beint að því. Konurnar á skrifstofunni þar héldu samt að við ættum að geta fengið eitthvað endurgreitt en það á eftir að koma í ljós. Þurfum að fara í gegnum einhvern process núna... Ef ég fæ ekki peninginn endurgreyddann þá þýðir það líka að ég er ekki að fara að fljúga aftur með Sterling. ef fólk hefr verið að kvarta við express heima þá er Sterling miklu verra...

 

 

Er að spá í að skríða upp í rúm...

 

out....


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 06:37:17 / jóli

Ungverjaland

Já þá er það síðasti dagurinn í landi Ungverja. Er búin að hafa það rosalega gott hérna

Fór á mánudaginn að heimsækja vinkonu mína sem býr í Pécs og eyddi þar 2 nóttum. Hún og systir hennar tóku mig á ýmsa staði og hittum við fullt af vinum þeirra líka. Lítil og falleg borg en ekki mikið að gera þarna að þeirra sögn.

Kom aftur til Búdapest í gær og var deginum eytt á labbi í bænum. Þar sem við erum búin að skoða flestu túristastaðina þá er ekki mikið eftir að gera. Hugsa samt að ég fari og rölti eitthvað meira um því jacob fer til tannsa í dag. ÞArf bara að finna mér eitthvað spennandi... google...

 

Langaði bara að láta vita af mér...

Verður örugglega ekki mikið um blogg á næstunni... Samt sem áður... ekki örvænta;)

 

out......


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 15:35:51 / jóli

Smá update

-komin í grúbbu í skólanum og lýst vel á:)

-happy meal með bekknum á föstudaginn og allir að koma með eitthvað... ég og karólína ætlum bar aað gera pönnsur með sykri

 -búdapest á sunnudaginn

-mamma og óli koma í næstu viku

-aðgerð 22. okt

 

-ég nenni ekki að blogga... finnst ég ekki hafa neitt að segja, nenna heldur ekki margir að kommenta;)

 

 

out....


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 14:44:55 / jóli

Veikindi

Afsakið léleg blogg. Hef ekki nennt að vera að blogga mikið því ég er ekki með þráðlaust net og nenni því mismikið að sitja fyrir framan tölvuna og blogga. Reyndar ætti það kannski, já ég segi kannski, að lagast núna þar sem að ég er búin að kaupa router og hann kominn í hús.Nú er næst á dagskrá að tengja hann og þá er íbúðin reddí fyrir utan sjónvarpið og dvd spilarann sem ég fæ vonandi um helgina:) Ljósin öll komin upp og nú get ég lýst allt upp hérna ef mig langar til.

 

Annars þá sit ég veik heima núna... hrikalega er það leiðinlegt. Er með eitthvað í hálsinum og hita og leiðindi og ekki nenni ég að læra. eitthvað sem ég ætti að vera að gera akkúrat núna. Endalausir fyrirlestrar í skólanum og svona. Málið er bara þannig að ef maður les fyrir fyrilestrana, allaveganna suma, þá þarf maður liggur við ekkert að vera að mæta þar sem að sumir kennararnir eru ekkert duglegir við að bæta við og fræða mann betur um efnið. Þeir í raun þylja bara upp það sem stendur í bókinni. Frekar þreytandi að vera í þannig fyrirlestrum. annars þá er þetta nám mjög skemmtilegt og áhugavert að mínu mati og margt nýtt sem maður lærir þannig að ef einhver af ykkur hefur áhuga á því, endilega skella sér. Það er bara svo skrítið að hugsa til þess að maður sé í mastersnámi og eigi ekki nema 2 ár eftir að skóla. Mér finnst ég bara vera krakki ennþá.

 

Eftir rúmlega tvær vikur liggur svo leiðin til Búdapest í annað skipti á þessu ári. Ákvað bara að skella mér aftur með Jacobi og er að vonast til að hún Ildiko vinkona mín verði stödd í Ungverjalandi að þessu sinni. Sá hana síðast fyrir um ári síðan þannig að það yrði gaman að hitta hana loksins aftur.  Sama dag og við komum svo aftur til Danaveldis þá koma mamma og Óli til mín í heimsókn. Hlakka ekkert smá til að fá þau hingað. Þau eru þó aðallega að koma til þess að hjálpa mér í kringum aðgerðina sem er sett þann 22 okt. Get ekki beint sagt að ég hlakki til. Verður gott ef að hún getur lagað þetta blessaða hné á mér svo þetta sé ekki að gerast á hverju ári einu sinni eða oftar. Óþolandi. Vona bara það besta.

 

Langar svo að lokum að óska henni Helen innilega til hamingju með strákinn:) Hlakka til að hitta þau í des:)

 

Ég ætla að skríða upp í rúm og lesa

 

out.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 08:19:28 / jóli

er að koma heim um jólin

Flugmiðinn kominn í hendurnar og verður lent seint um kvöldið þann 22 í keflavík. Lagt verður svo aftur af stað til Danaveldis þann 8. janúar... tímapantanir í gegnum komment eða e-mail;) Hver býður svo best í samb við áramótin... hef ekki ákveðið hvar ég verði...

 

 

out....


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 12:59:07 / jóli

flutt og fleira

Jæja þá er ég loksins flutt... eða eins mikið og hægt er... er enn að koma íbúðinni í stand en það gengur hægt og rólega þótt hún sé nú ekki stór. Byrjaði í skólanum á nánast sama tíma og búnir að vera nánast stanslausir fyrirlestrar og heimalestur. Já það er ekkert verið að slaka neitt á fyrstu vikuna. Ég er semsagt byrjuð í Mastersnámi sem er kallað ccg sem stendur fyrir culture, communication and globalization. Mér finnst þetta rosa spennandi og er alveg heilluð eins og staðan er núna. Það er hægt að velja 4 línur innan þessa náms í sérhæfingu og ætla eg að byrja á tveimur, markaðsfræði og svo stjórnun.

 

annars þá er nottla ekkert að frétta frekar en fyrri daginn... er að vonast til að fá mömmu í heimsókn núna í okt í kringum aðgerðina já og svo er ég að koma heim um jólin:) ætla að panta flug á morgun þegar ég veit meira um skólann og hvernig það verður... þannig að nú er um að gera að taka númer og fara að panta tíma;)

 

en já nóg af bloggi núna... ég verð að fara að drullast til að læra.. er búin að vera á vappinu með gaur frá Sri Lanka um alla Álaborg í dag og sýna honum allt og redda hlutunum.... og ég er þreytt núna!

 

 

out....


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 19:13:30 / jóli

Latur bloggari

Já ég get ekki beint sagt að ég sé dugleg að blogga enda gerist nánast ekkret í lífi mínu þessa dagana nema vinna.

ÉG á viku eftir af vinunni og er eiginlega að vonast til þess að geta fengið vinnu einu sinni í viku með skólanum þótt það þýði að ég þurfi að vera þreytt einn dag í viku í skólanum. Fínt að fá smá vasapening. Bara verst að nú verður þetta ekki eins þar sem að í síðustu viku hætti einn af skemmtilegustu og fyndnustu mönnunum sem eru að vinna þarna. Hans verður saknað... var að vinna í minni deild og það sem kom út úr þessum manni stundum.

 

En já ég fór á Katie Melua tónleika um daginn og var alveg hrikalega gaman. eina sem skemmdi er að við sátum ekki á beint besta stað og hljóðið var svona upp og ofan... svolítið bergmál en maður lét það ekki hafa áhrif á sig.

 

Svo styttist í að ég fái loksins mína íbúð. Fæ lyklana á fimmtudaginn og get ekki beðið eftir að flytja. Já það er mikið að gerast á næstu 10 dögum. Flutningar, byrja í mastersnámi og svo verð ég aftur svona buddy fyrir nema sem eru að koma hingað. Fékk 3 einstaklinga. Eina Stelpu frá Þýskalandi og aðra frá Sri Lanka (held allaveganna að það sé stelpa;)) og svo gaur frá Cameroon. Veit allaveganna að þýska stelpan kemur en hef ekkert heyrt frá hinum. Síðast þá fékk ég 3 frá Afríkuríkjum og það mætti ekki einn á svæðið þannig að ég endaði með 3 gaura sem höfðu ekki fengið buddy. Ekki það að ég hafi neitt á móti afríkubúum, bara pirrandi að mæta á svæðið og þau mæta ekki einu sinni sjálf. Stelpan þá var að vísu löglega afsökuð þar sem að hún ákvað að koma ekki því mamma hennar var víst eitthvað alvarlega veik. Hún lét mig þó allaveganna vita:)

 

en alalveganna þá er Lísa á leiðinni til mín núna og við ætlum að kíkja aðeins á djammið... kannski kominn tími til þar sem ég er ekkert búin að djamma neitt í allt sumar... bara svona kíkja í einn tvo bjóra í bæinn... verð samt að passa mig að drekka ekki of mikið svo ég meiki að mæta í vinnu annað kvöld og vinna um nóttina.

 

Já svo afmæliskveðjur... síðbúnar eru betri en engar... Sigðurur Logi mesta krútt varð einsárs síðastliðinn sunnudag (19. águst), Steini frændi og Guðrún vinkona áttu svo afmæli í gær ásamt honum Helga stjúpsyni Steina og sonur Auðar. Óska ég þeim öllum innilega til hamingju með daginn:)

 

Lísa er mætt á svæðið þannig að þangað til næst...

 

 

out.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 01:44:03 / jóli

Sælt veri fólkið

Jæja er ekki kominn tími á blogg... klukkan hálf fjögur að nóttu til hérna úti og ég get ekki sofið. Gerist frekar oft eftir að ég byrjaði að vinna á nóttunni en allaveganna...

 

Ég var í skoðun og öllum pakkanum uppi á spítala á föstudaginn í sambandi við hnéð á mér og það er staðfest að ég fer í aðgerð. Læknarnir eru ekki alveg 100% að þetta sé hnéskelin en frekar öruggir á því. Gætu samt víst verið krossböndin sögðu þeir en mér finnst það ólíklegt.

Aðgerðin á að fara fram í Október eða viku 43 eins og danirnir segja. Þeir telja allt í vikum. Gæi skeikað um 2-3 vikur. Ég verð víst skorin upp.. ekkert leiser dæmi eða svona í gegnum smásjár eins og ég hélt og til að vera alveg hreinskilin þá er ég nú ekki spennt. Aldrei áður verið svæfð eða farið í neitt svona. Það sem í raun hræðir mig mest er að ég fæ víst nál framan á höndina sem ég verð svæfð í og fæ verkjastillandi í gegnum. Þeir sem þekkja mig vel vita hvað mér finnst um nálar og ég ætla ekkert nánar út í það. ég má heldur ekki vera ein í 24 tíma eftir aðgerðina og er ég ekki alveg að skilja það. Hjúkkan sagði að það væri eitthvað í sambandi við svæfinguna og lyf sem ég fengi. Það á víst að taka mig 6-7 vikur að jafna mig eftir þetta. Er að reyna að athuga hvort ég geti ekki fengið netta spelku smíðaða heima því spelkan sem ég á að vera hér (sama og venjulega) er nottla bara mest gamaldags. kemur vonandi í ljós í næstu viku. Er ekki alveg að meika að vera meira með þennann svamp á löppinni því hann er bara ógeð... Já Fanney þú hefur séð þetta ógeð.... og mamma líka. Aðgerðin er nottla ekki alveg 100% örugg í sambandi við að sjá niðurstöður og þetta er minnsta aðgerðin sem gerð er . Ef hún virkar ekki þá verður gert eitthvað ennþa meira en vonandi þarf þess ekki þar sem hnéð er búið að sýna óvenju góðann bata núna miðað við áður fyrr. en já þetta er það helsta.

 

annars þá verð ég flutt eftir 2 vikur í mína íbúð. Er Eiginlega komin með allt í íbúðina... borðstofuborð og stólar smá óljóst ennþá en kemur í ljós eftir helgi. Það er þó alltaf hægt að redda því. Hef ekki áhyggjur.

 

´Fór svo í dýragarðinn í dag með Gunnar Mána, strák sem ég hef stundum verið að passa, og skemmti mér mjög vel. Skellti mér svo að borða með Jacob og Rune og fórum við svo með Erni, Eydísi og Gunnu i bíó á Born ultimatum... get ekki sagt hvernig hún var þar sem ég svaf mest alla myndina....:/ hehe.. kíktum svo í 2 bjóra í bænum en vorum ekki að nenna meiru.

En já er að spá í að reyna að fara að sofa núna. Er að fara á Katie Melua tónleikana á morgun með Erni, Eydísi og Gunnu systir hennar. Hlakka ekkert smá til:)

 

 

out...


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18